Þetta er síðan mín

Elva Marín Elvarsdóttir

01.12.2006 14:48:06 / elva_marin

í sveitinni

Jæja það var nú aldeilis gaman hjá mér um helgina. Pabbi og Jenný komu og sóttu mig í leikskólan á föstudaginn og ég var soldið hissa að sjá þau þarna alltíeinu....en þeim fannst voða gaman að fylgjast með mér leika við hina krakkana. Svo sýndi ég þeim leikskólan minn og fullt af dóti.

Svo brunuðum við beint norður á Skagastönd og vorum komin þangað um átta. Eg var fljót að þekkja fjölskylduna hennar Jennýar aftur við vorum nebbla saman í Vaglaskógi yfir verslunarmannahelgina en þar lét ég nú bara fara vel um mig og hámaði í mig hakk og spagetti af bestu lyst enda orðin svöng eftir ferðalagið. Eftir matinn hjálpaði ég pabba mínum að setja saman hillu sem við komum með norður.....ég fékk að passa allar skrúfurnar og svoleiðis. Eg var með mjög ákveðnar skoðanir hvernig átti að setja þetta saman og þeim var auðvitað fylgt hehe:lol:  Pabbi, Jenný og Ellen fóru svo að horfa á mynd og ég fékk að horfa smástund með þeim. Þreytan sagði fljótt til sín og ég skreið fegin uppí rúm með bangsa og steinsofnaði!

A laugardeginum fórum við Pabbi, Jenný og Ellen út að renna, ég var ekkert svakalega spennt fyrir því að fara hratt en fannst það samt lúmskt gaman.....það var bara pínu rok og mér var orðið svoldið kallt á kinnunum:^) Við fórum svo í heimsókn til ömmu og afa hennar Jennýar og amma hennar var að kenna mér að spila á piano lærði meira að segja heilt lag.....sem pianoið spilaði reyndar sjálft:$ Svo kom ég mér bara vel fyrir í fanginu hjá langömmu eins og ég kallaði hana og horfði á sjónvarpið.

A sunnudeginum fórum við svo af stað suður um 3 leitið og komum í bæinn rúmlega sex beint í læri hjá Bóa afa mmmmmmm


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 16:05:37 / elva_marin

Hæ hæ

Jæja nú getur fólk fylgst með hvað ég er að bralla þegar ég er hjá Pabba og Jenný!

Jenný er búin að vera voða dugleg að setja inn myndir síðan í sumar og á vonandi eftir að halda því áfram

bæ bæ:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill